Atburđarteljari

Auglýsing

Hvar erum viđ núna?

I Boliviu

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Venezúela til Kólumbíu

27. október 2008 klukkan 00:31
Jæja þá erum við sloppin frá Venezúela og komin til Kólumbíu, en það gekk ekki alveg klakklaust fyrir sig. Bærinn í Venezúela sem er farið frá til Kólumbíu heitir Maracaibo og þar tókum við líklega eina ógáfulegustu ákvörðun ferðarinnar hingað til, ákváðum að fara yfir landamærin með hálfgerðum leigubíl, sem er svosum mjög algengt að fólk geri, en við fórum uppí einn slíkan sem var ómerktur, semsagt ekki official bíll, og til að bæta gráu ofan á svart þá voru fjórir gríðarstórir menn með okkur í bílnum. Það sem gerði þetta ennþá vafasamara var þegar bílstjórinn opnaði húddið á bílnum til að starta honum, en einhverra hluta vegna ákváðum við að treysta þessum mönnum og fórum uppí bílinn. Eftir ca. 10 mínútna akstur hvað haldiði að hafi gerst? Jújú bíllinn bilaði, sem var algjörlega í samræmi við allt annað í þessu landi. Það tók manninn svo góðan hálftíma að gera við bílinn og loksins komumst við að stað aftur, en við fórum ekki langt því einhverra hluta vegna þurftum við að skipta um bíl, sem var reyndar mjög gott því bíllinn sem við fórum í var official bíll og þá fór okkur öllum nú að líða betur. Á leiðinni að landamærunum voru svo ein 6 lögreglutékk, á amk einu þeirra mútaði einn gaurinn í bílnum okkar löggunni svo við fengjum að fara fram hjá án þess að hann skoðaði nokkuð hjá okkur. En á einum staðnum ákvað lögga að vera með vesen við okkur gringo-ana. Hann reyndi að halda því fram að fyrst við hefðum komið til Venezúela með flugfél þá þyrftum við að yfirgefa landið á sama hátt. Hann var í rauninni bara að leita eftir mútum frá okkur en við þóttumst bara ekki skilja neina spænsku og á endanum gafst hann upp á okkur og sagði okkur að fara í gegn. Þannig að þetta blessaðist allt saman að lokum og við komumst yfir landamærin.

Það er eiginlega stórfurðulegt hversu mikill munur er á þessum tveimur löndum, Venezúela er rándýrt, það virkar ekkert þar, fólkið er lítið hjálplegt og bara almennt séð frekar dónalegt en í Kólumbíu er allt svo ódýrt að við gætum líklega verið hér í mörg ár, fólkið hérna er miklu vinalegra og hjálplegra og bara almennt séð miklu skemmtilegra á allan hátt. Við gistum á hosteli í bæ sem heitir Santa Marta og nóttin þar kostar heilar 500 krónur, morgunmaturinn kostar ca. 200 kall, og hádegis- og kvöldmatur alveg hátt í 400 kall, bjórinn er svo að kosta okkur um 75 krónur íslenskar, þannig að við lifum hér bara nokkuð vel fyrir rúman þúsund kall á dag, alls ekki slæmt það. Á morgun erum við svo að fara í 6 daga gönguferð í leit að týndri borg, þetta ku víst vera ansi strembin ferð, farið er yfir 9 straumharðar ár á leiðinni og algengt er að rekast á eitraða snáka. Og bara svo þið farið nú ekki að hafa áhyggjur af okkur þá rændu skæruliðarnir hér túristum sem voru í þessari ferð fyrir nokkrum árum og leiðsögumaðurinn sem er að fara með okkur er einn af þeim sem var rænt, en þetta er allt í lagi því þeir slepptu öllum eftir 3 mánuði. Þannig að ef ekkert heyrist í okkur eftir rúma viku þá getiði verið alveg róleg, við verðum í öruggum höndum Kólumbískra skæruliða...

Hér koma svo örfáar myndir sem gætu glatt augað, fleiri næst:

Stúlkurnar að reyna að líta út fyrir að vera hressar í Venezúela.



Bíllinn sem átti að flytja okkur yfir landamærin en bilaði svo.



Hostelið okkar í Kólumbíu er svooooooooona langt frá ströndinni.



Eyrún horfist í augu við sinn helsta ótta og klappar Iguana eðlu.

Trekantur
uppörvandi að vita að ykkur gæti verið rænt..... Vona þá allavega að ykkur verði sleppt fyrir jól.
En best er auðvitað að þið sleppið við þetta og tja finnið kannski borgina :)
Gangi ykkur rosa vel.
KV. Drífa
27. október 2008 klukkan 12:14
Og þið sem ætluðuð að plata Rúnu mína með ykkur í þessa ferð.... Bwahahahahahahahahaha sú hefði sómað sér vel í labbitúr með eitruðum snákum og skæruliðum.

Góða skemmtun samt.
27. október 2008 klukkan 13:50
Stefán Pálmason
 
Ég hef ekki tíma til að koma og bjarga ykkur frá þessum skæruliðum fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót! Svo ég vona að þeir verði ekki búnir að stuffa ykkur með kókaíni og senda ykkur á líkbörum til íslenskra fjárglæframanna áður en sá tími kemur. Ég fer og brýni hnífana mína!
28. október 2008 klukkan 00:07
heiđdís
 
Ó MÆ GOOOOOOOD!!!!!
30. október 2008 klukkan 00:15

Skrifa athugasemd